Fréttir

Íbúafundir um sameiningu í Garði og Sandgerði
Löndin eru eitt af hverfum Sveitarfélagsins Garðs. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mánudagur 20. febrúar 2017 kl. 09:32

Íbúafundir um sameiningu í Garði og Sandgerði

Stýrihópur sem vinnur að úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar hefur boðað til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum í þessari viku. Fundað verður í Garði á miðvikudag og Sandgerði á fimmtudag.
 
Í Garði verður fundurinn haldinn  miðvikudaginn 22. febrúar í Miðgarði, sal Gerðaskóla frá  kl. 19:30 – 21.30.
 
Í Sandgerði verður fundurinn haldinn fimmtudaginn 23. febrúar í Vörðunni frá kl. 17 – 19.
 
Dagskrá:
1.    Hvers vegna skyldu kostir og gallar við sameiningu bæjarfélaganna Garðs og Sandgerðis kannaðir?
2.    Framtíðin – mögulegar sviðsmyndir kynntar.
3.    Framtíðaráherslur – hver er sýn íbúa?
 
Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.  Íbúar sveitarfélaganna eru velkomnir á hvorn fundinn sem er, segir í tilkynningu.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024