Fréttir

Íbúafundir í Garði og Sandgerði vegna mögulegrar sameiningar
Íbúafundir verða 29. maí og 31. maí, opnir öllum.
Föstudagur 26. maí 2017 kl. 11:05

Íbúafundir í Garði og Sandgerði vegna mögulegrar sameiningar

Stýrihópur sem vinnur að úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar boðar til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum til kynningar á niðurstöðum úttektar.

Ráðgjafar KPMG munu kynna helstu niðurstöður greiningar varðandi sameiningu sveitarfélaganna, næstu skref og að því loknu verða umræður.

Public deli
Public deli

Í Sandgerði verður íbúafundur haldinn mánudaginn 29. maí í Grunnskólanum í Sandgerði og hefst kl. 20. Í Garði verður íbúafundur miðvikudaginn 31. maí í Miðgarði, sal Gerðaskóla kl. 20:30. Fundirnir eru öllum opnir.