Heklan
Heklan

Fréttir

Í vímuakstri með tvo unga syni sína
Mánudagur 20. maí 2019 kl. 10:21

Í vímuakstri með tvo unga syni sína

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gær vegna gruns um fíkniefnaakstur var með tvo unga syni sína í bifreiðinni og var annar þeirra án öryggis- og verndarbúnaðar. Sýnatökur á lögreglustöð sýndu jákvæðar niðurstöður á neyslu ökumannsins á fíkniefnum og var viðkomandi því handtekinn. Aðstandendum barnanna svo og barnavernd Reykjavíkur var gert viðvart um málið.
 
Auk þessa hefur lögregla tekið fáeina ökumenn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaneyslu á undanförnum dögum.  Þá hafa nær tuttugu ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur.  Skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25