Í símanum á ljóslausri vespu
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu, sem ekki fór alveg að þeim reglum sem gilda um akstur slíkra farartækja. Vespan var ljóslaus og stúlkan talandi í síma, hjálmlaus. Rætt var við stúlkuna og henni bent á að koma hlutunum til betri vegar og fara varlega í umferðinni. Þá var forráðamönnum hennar sent bréf vegna atviksins.