Bygg
Bygg

Fréttir

Í nógu að snúast hjá lögreglunni
Fimmtudagur 26. september 2002 kl. 18:35

Í nógu að snúast hjá lögreglunni

Lögreglumenn höfðu í nógu að snúast í allan dag. Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut. Annar var tekinn á 111 km. hraða og hinn á 119 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90. Þá var einn ökumaður tekinn fyrir stöðvunarskyldubrot í Keflavík.Þá voru tveir stöðvaðir fyrir að hafa ekki öryggisbelti í Garðinum. Þeir fá væna sekt frá sýslumanni. Þá var tilkynnt um árekstur á Hafnargötu við Aðalgötu þar sem ekið var aftan á bifreið. Engin slys urðu á fólki en eignatjón nokkuð.
Bílakjarninn
Bílakjarninn