Í gæsluvarðhald til 26. mars
Lögreglan á Suðurnesjum hefur fengið gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn í síðustu viku með rörasprengju og vopn á heimili sínu framlengt til 26. mars nk.
Maðurinn var handtekinn í kjölfar ábendingar um undarlegt háttarlag á Facebooksíðu sinni. Maðurinn tók á móti sérsveitarmönnum vopnaður hnífi en var fljótt yfirbugaður. Hann var fyrst úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í síðustu viku, sem nú hefur verið framlengt til 26. mars. Úrskurðurinn hefur verið kærður til hæstaréttar.
Myndin er af Facebook-síðu mannsins.