Í gæsluvarðhald eftir að hafa látið greipar sópa í fríhöfninni
Karlmaður á sextugs aldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. mars nk. vegna gruns um ítrekaðan þjófnað á varningi úr Fríhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þegar hann var handtekinn nú síðast í flugstöðinni fundust í fórum hans fundust sjö sígarettukarton, áfengi og ilmvötn, samtals að verðmæti um 125 þúsund krónur.
Talið er að maðurinn tilheyri hópi manna af erlendum uppruna sem stundi með skipulögðum hætti þjófnað á dýrum varningi úr verslunum í flugstöðinni en þó aðalega á sígarettum. Kom fyrst til afskipta af hópnum í ágúst 2018 og fór þá hluti hópsins af landinu en karlmaðurinn er búsettur hér á landi hefur haldið uppteknum hætti.
Stundaði hópurinn að kaupa ódýra flugfarmiða og skrá sig til flugs en í stað þess að fara í flugið lét hópurinn greipar sópa um verslanir í brottfarasal flugstöðvarinnar. Upp komst þegar háttarlagið þegar tollverðir í flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu ferðir einstaklinga úr hópnum. Við húsleit heimilum grunaðra lagt hald á mikið magn sígarettukartona og annarskonar varnings sem talin er vera úr verslunum í flugstöðinni.