Mánudagur 24. desember 2001 kl. 01:38
Í fótbolta á Þorlák

Þeir Jóhann, Birgir, Ingólfur og Viktor voru í fótbolta úti á blett þegar tíðindamaður Víkurfrétta ók framhjá. Vanalega eru svona hressir peyjar í einhverjum leik tengdan snjó á þessum tíma árs.All nokkrir sáust í golfi á Hólmsvelli í Leiru. Þó flestir sakni þess að ekki sé jólasnjór virðast allir ánægðir með blíðuna, enda varla annað hægt.