Hvöss norðanátt
Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn gerir ráð fyrr norðan 13-20 m/s, en austlægari síðdegis. Líkur á stöku éljum. Minnkandi norðaustanátt á morgun og bjart í veðri. Hiti um og undir frostmarki.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Norðlæg átt, 10-18 m/s, en heldur hægari síðdegis. Skýjað með köflum og úrkomulaust að kalla. Lægir á morgun og birtir til. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðan og norðaustan 8-13 m/s. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, él á norðausturhorninu og stöku él í öðrum landshlutum. Frost 0 til 7 stig, mildast við suðurströndina.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðlæg átt, yfirleitt hæg. Dálítil él norðan- og austanlands, en annars léttskýjað að mestu. Frost 2 til 12 stig, mest inn til landsins.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðaustanátt með ofankomu N- og A-til. Fremur kalt í veðri.