Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 13. nóvember 2001 kl. 13:48

Hvíta duftið sent Kaffitári

Umslagið með hvíta duftinu sem barst til Keflavíkur var í gámi til Kaffitárs. Gámurinn innihélt einnig kaffibaunir frá Rúanda sem ætlaðar voru til vinnslu hjá kaffiverksmiðjunni í Reykjanesbæ.Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs, sagði í samtali við Víkurfréttir að fyrirtækið væri lokað í dag vegna málsins. Engar vörur úr gámnum höfðu borist til verksmiðjunnar og aðeins hafði einn starfsmaður fyrirtækisins komist í snertingu við efnið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn