Hvít jörð á Suðurnesjum í hálfan sólarhring

Golfmóti á golfvellinum í Leiru var frestað þar sem menn hættu að sjá golfboltana í mjöllinni. Menn tóku snjókomunni þó létt en muna ekki eftir hvítri jörð í Leiru í rúmlega þriggja áratuga sögu golfvallarins.
Meðfylgjandi mynd tók Páll Ketilsson þegar golfarar streymdu í hús í snjóhríðinni í gærkvöldi.