Fréttir

Hvetur þingheim til þess að gyrða sig í brók
Fimmtudagur 18. október 2018 kl. 10:12

Hvetur þingheim til þess að gyrða sig í brók

Vill viðunandi heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum

Keflvíkingurinn Jóhann Friðrik Friðriksson vakti athygli á grafalvarlegri stöðu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þegar hann hélt jómfrúarræðu sína á Alþingi í vikunni. Jóhann situr nú á þingi sem varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi. 

„Íbúar hafa búið við falskt öryggi um langt skeið og er nú mál að linni. Heimilislæknakerfið á Suðurnesjum er einfaldlega ekki til og sérfræðiþjónusta takmörkuð,“ sagði Jóhann en hann vitnaði í mat landlæknisembættis frá árinu 2017.

Public deli
Public deli

„Mönnun lækna og hjúkrunarfræðinga er ónóg og má lítið út af bera til að öryggi sé hugsanlega ógnað vegna ófullnægjandi mönnunar. Heilsugæslan er augljóslega undirmönnuð af fagfólki, sérstaklega er ástandið slæmt í geðteymi og meðferðarteymi barna,“ segir í skýrslunni sem Jóhann vitnar til. Jóhann segist hræddur um að staðan sé nú mun verri en á síðasta ári enda fjölgun íbúa mest hérlendis á Suðurnesjum.

„Maður skyldi ætla að óhjákvæmilega væri verið að auka í þegar kemur að fjárveitingum til HSS en svo er ekki. Samkvæmt því fjárlagafrumvarpi sem Alþingi hefur nú til meðferðar er raunaukning fjárveitingar til HSS minnst og heildarfjárveiting á hvern íbúa einnig lægst. Ég er furðulostinn yfir þeirri staðreynd. Ég hvet heilbrigðisráðherra og þingheim allan til þess að gyrða sig í brók og tryggja viðunandi heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum í eitt skipti fyrir öll,“ ræðu Jóhann má sjá hér að neðan.