Hvetja eigendur tómra íbúða að bjóða þær til leigu
Á fundi bæjarráðs í vikunni var farið yfir lista yfir tómar íbúðir í Grindavík. Mikill meirihluti eignanna er í eigu Íbúðalánasjóðs og Landsbankans.
Grindavíkurbæ berast reglulega athugasemdir og ábendingar um ástand auðra húsa og íbúða. Jafnframt berast fyrirspurnir um eigendur slíkra eigna með fyrirspurn um um möguleika á kaupum eða leigu.
Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði í Grindavík enda hefur íbúum fjölgað um rúmlega 1% frá síðustu áramótum, eða um 32 einstaklinga. Bæjarráð vill því hvetja eigendur auðra íbúða og húsa til að koma íbúðum sínum í íbúðarhæft ástand og bjóða þær til leigu eða sölu ef ekki stendur til að eigandi búi þar sjálfur.