Hvessir síðdegis
Klukkan 9 var suðvestanátt, yfirleitt 5-12 m/s. Rigning eða súld var á Suðurlandi, en úrkomulaust var um landið norðvestanvert. Frostlaust var á láglendi, hitinn hæstur 9 stig á Seyðisfirði.
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun:
Sunnan og síðar suðaustan 5-10 m/s, en hvessir síðdegis. Rigning eða súld og hiti 3 til 6 stig. Gengur í suðvestan 15-23 með slydduéljum seint í kvöld, hvassast við ströndina, en 10-15 og él í fyrramálið. Heldur kólnandi á morgun.