Bygg
Bygg

Fréttir

Hvessir með kvöldinu
Föstudagur 4. maí 2007 kl. 09:17

Hvessir með kvöldinu

Klukkan 6 var hæg vestlæg átt og stöku skúrir vestantil, snjókoma eða slydda á annesjum norðanlands, en annars bjart með köflum. Kaldast var 2 stiga frost í innsveitum norðaustanlands og sums staðar á Vestfjörðum, en hlýjast 6 stiga hiti í Papey, Kollaleiru og Teigarhorni.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Vaxandi austanátt í dag, 10-15 m/s og skýjað, en úrkomulítið í kvöld, en dálítil rigning sunnantil á morgun. Hiti 3 til 8 stig.

Yfirlit
Við Jan Mayen er 1005 mb lægð sem mjakast A, en um 500 km SSA af landinu er 1025 mb hæð, einnig á A-leið. NA af Nýfundnalandi er víðáttumikil 993 mb lægð.

Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Hæg vestlæg átt, en norðvestan 5-10 m/s á annesjum norðaustanlands. Stöku skúrir eða slydduél vestan- og norðanlands, en annars bjartviðri. Vaxandi A-átt og þykknar upp sunnanlands síðdegis, 8-13 m/s og fer að rigna sunnantil í kvöld. Norðaustan 8-15 á morgun, en hægari norðaustantil. Rigning eða slydda um landið sunnanvert, en annars stöku skúrir eða él. Hiti 2 til 10 stig að deginum, en víða næturfrost inn til landsins.

Iðagrænar grundir í Grindavík í gær, VF-mynd/elg

Bílakjarninn
Bílakjarninn