Hvessir í kvöld en lægir aftur á morgun
Norðlæg átt, víða á bilinu 5-15 m/s, hvassast norðaustantil. Él á norðanverðu landinu, einkum norðaustanlands, en bjartviðri vestan- og sunnanlands. Frost yfirleitt 4 til 14 stig.
Faxaflói
Norðaustan 5-13 m/s og bjartviðri, en 8-15 síðdegis. Lægir heldur síðdegis á morgun. Frost 3 til 12 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðaustlæg átt, 3-8 m/s, en 5-10 í kvöld. Léttskýjað og frost 4 til 11 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðan 8-13 m/s, en þurrt og bjart sunnantil. Heldur hvassara við austurströndina. Frost 5 til 10 stig, en kaldara inn til landsins.
Á laugardag:
Fremur hæg breytileg átt. Heldur mildara um landið vestanvert og stöku él, en áfram kalt og bjart fyrir austan.
Á sunnudag:
Vaxandi sunnan átt. Snjókoma eða slydda um landið suðvestanvert og hiti kringum frostmark, en annars snjókoma og frost 0 til 5 stig.
Á mánudag:
Suðvestlæg átt og rigning eða slydda um landið suðvestanvert, en annars slydda eða snjókoma. Hlýnar lítið eitt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestan átt með éljagangi og kólnandi veðri.