Hvessir í kvöld
Veðurhorfur við Faxaflóa í dag
Norðaustan 5-13 m/s og skýjað með köflum og þurrt að mestu. Hvessir í kvöld. NA 10-18 m/s, skýjað en úrkomulítið á morgun. Hiti 3 til 10 stig, en svalara á morgun.
Athugasemd frá veðurstofu
Næstu daga má búast við stífri norðlægri átt með kólnandi veðri um allt land og slyddu eða snjókomu um norðanvert landið, en úrkomulítið suðvestantil.