Hvessir í kvöld
Klukkan 6 var norðlæg átt, víða 5-10 m/s, en 10-15 austast. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en víða léttskýjað annnars staðar. Frost 2 til 10 stig, kaldast við Mývatn.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og léttskýjað, en hvessir heldur í kvöld og nótt. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar