Hvessir í dag
Búist er við norðaustan 13-18 m/s við Faxaflóann í dag en 18-23 síðdegis. Lægir smám saman í nótt, norðaustan 10-15 nærri hádegi á morgun. Bjart að mestu í dag, síðan skýjað en úrkomulítið. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðaustan 10-20 m/s, hvassast á suðaustanlands og á Vestfjarðakjálkanum. Slydda eða rigning, en þurrt að kalla um suðvestanvert landið. Hiti 0 til 5 stig.
Á laugardag:
Norðaustan hvassviðri á Vestfjörðum, en annars hægari austlæg átt. Rigning eða slydda í flestum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig.
Á sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt, yfirleitt fremur hæg. Víða dálítil él, einkum norðan- og austanlands. Sums staðar frostlaust við ströndina, annars vægt frost.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir suðlægar áttir með úrkomu, einkum sunnantil á landinu. Fremur milt í veðri.
Ljósmynd/Ellert Grétarsson – Óveðursský yfir Reykjanesbæ.