Bygg
Bygg

Fréttir

Hversu margir svíkja út bætur?
Föstudagur 1. nóvember 2013 kl. 11:45

Hversu margir svíkja út bætur?

Ársfjórðungslegt rekstraryfirlit Sveitarfélagsins Voga var til umræða á síðasta fundi bæjarráðs Voga. Bergur Brynjar Álfþórsson bæjarfulltrúi sá ástæðu til að bóka á fundinum og spyr m.a. af því hversu margir einstaklingar þiggja fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu í dag og hversu mörg svikamál hefur verið komið upp um og þá hversu margir hafi „misst“ bætur í kjölfarið?

Bókun Bergs er svohljóðandi:

„Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013 ákvað meirihluti bæjarstjórnar að lækka fjárheimildir vegna fjárhagsaðstoðar um næstum þriðjung frá áætlaðri útkomu ársins 2012. Ég mælti mjög gegn þessu þar sem fyrir lá að fjöldi einstaklinga missti rétt til atvinnuleysisbóta á árinu 2013 og ekkert benti til þess að þörfin yrði minni á þessu ári en því síðasta.

Helstu rök meirihlutans voru þau að þessu mætti ná fram með því að taka á bótasvindli, og mátti þá skilja sem svo að meirihlutinn hefði fyrir þvi heimildir að um þriðjungur bótaþega í sveitarfélaginu væru að þiggja bætur án þess að eiga til þess rétt.

Nú liggur fyrir að áætlun fyrir málaflokkinn fyrir þetta ár stenst engann veginn, bæjarstjóri upplýsir að það þurfi að tvöfalda upphæðina og gott betur á þessu ári.

Ég óska því svara við eftirfarandi:

Hversu margir einstaklingar þiggja fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu í dag?

Hversu mörg svikamál hefur verið komið upp um og þá hversu margir hafa „misst“ bætur í kjölfarið?“

Bílakjarninn
Bílakjarninn