Bygg
Bygg

Fréttir

Hvers vegna eru aðeins 6 - 8 heilugæslulæknar starfandi á HSS þegar fjárframlög eru fyrir 17 lækna?
Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 08:37

Hvers vegna eru aðeins 6 - 8 heilugæslulæknar starfandi á HSS þegar fjárframlög eru fyrir 17 lækna?


Bæjarráð sveitarfélagsins Voga telur mikilvægt að heilbrigðisráðherra útskýri hvers vegna aðeins 6 - 8 heilsugæslulæknar eru starfandi á HSS fyrst stofnunin fær framlög til að ráða 17 heilsugæslulækna, eins og fram kom í máli ráðherrans á nýlegum íbúafundi um málefni HSS. Bæjarráð óskar eftir fundi með ráðherra þar sem hann útskýri þetta og hvað hann eigi við þegar hann talar um að efla heilsugæslu á Suðurnesjum.

Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs frá fundi þess á miðvikudaginn. Þar segir að bæjarráð hafi margsinnis fjallað um málefni HSS og lýst sínum sjónarmiðum og vilja til samstarfs um framtíðarstefnu HSS. Heilsugæslunni í Vogum hafi verið lokað, þrátt fyrir að í bænum búi 1200 manns og ekki hafi verið bætt við þjónustuna í Reykjanesbæ til að mæta þeirri lokun. Þá kemur fram að ráðherrar heilbrigðismála, núverandi og fyrrverandi, hafi lýst yfir góðum vilja til að vinna með heimamönnum að heilbrigðismálum. Lítið hafi þó orðið um markvissar viðræður milli ráðherra og heimamanna.

„Jafnframt tekur bæjarráð undir ályktun stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum um að heilbrigðisráðherra hefji án tafar viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um framtíð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,“ segir ennfremur í bókuninni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn