Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hverfalöggæslan í Vogum efld
Mynd með texta, Sigurður Bermann.
Miðvikudagur 2. október 2013 kl. 10:54

Hverfalöggæslan í Vogum efld

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Sigríður Björk Guðjónsdóttir fundaði ásamt Skúla Jónssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni með bæjarráði í Vogum þar sem kynnt var nýtt fyrirkomulag hverfislöggæslu í sveitarfélaginu. Sigríður kynnti jafnframt til leiks Sigurð Bergmann aðalvarðstjóra, sem nú hefur tekið við umsjón með hverfislöggæslunni í Vogum og Grindavík. Sigurður er enginn nýgræðingur í lögreglunni, en hann hefur starfað sem lögreglumaður frá árinu 1982.

Hlutverk hverfislögreglumanns felst ekki síst í því að þekkja starfssvæði sitt vel og mynda góð tengsl við íbúa og stofnanir sveitarfélagsins. Þar má nefnda barnaverndarnefndir, forvarnarnefndir, félagsþjónustu, umhverfis- og skipulagssvið, skóla, fyrirtæki og ýmis félagasamtök. Hverfislögreglumaður tekur jafnframt virkan þátt í starfsemi forvarnarteymis sveitarfélagsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024