Hver eru best skreyttu hús og fjölbýlishús bæjarins?
Íbúar í Reykjanesbæ eru margir hverjir sannkölluð jólabörn og leggja mikinn metnað í jólaskreytingar utandyra. Það er líka einstaklega gaman að taka rúnt um bæinn og skoða þessar fallegu skreytingar. Þar sem bærinn stækkar stöðugt geta glæsilegar jólaskreytingarnar leynst víða og því tilvalið að smella í laufléttan jólaleik þar sem íbúar geta komið með tillögur að best skreyttu húsunum og fjölbýlishúsunum í bænum. Húsasmiðjan ætlar að styðja við bakið á þessu uppátæki með gjafabréfi til þeirra húsa sem verða hlutskörpust í leiknum.
Takið þátt á Betri Reykjanesbær
Ferlið er sáraeinfalt. Ef þú sérð hús eða fjölbýlishús sem þér finnst ástæða til að vekja athygli á fyrir flottar skreytingar, þá smellirðu mynd af húsinu og leggur götuheiti og númer á minnið. Síðan er farið á vefsíðuna Betri Reykjanesbær, myndinni hlaðið inn og götuheiti og númer sett í titil. Síðan er smellt á hjartað til að greiða húsinu atkvæði.
Í ár ætlar Reykjanesbær að kjósa um best skreytta húsið annars vegar og best skreytta fjölbýlishúsið hins vegar.
Kosning til 19. desember
Hægt er að senda inn tilnefningar og kjósa til og með 19. desember næstkomandi. Afhending viðurkenninga fyrir best skreytta húsið og fjölbýlishúsið fer síðan fram í Aðventugarðinum á Þorláksmessu þar sem sigurvegarar fá einnig afhenta vinninga í boði Húsasmiðjunnar.