Hver er maður ársins 2018 á Suðurnesjum?
Eins og mörg undanfarin ár munu Víkurfréttir standa fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins nú um áramót. Óskað er eftir tilnefningum frá lesendum blaðsins.
Hin unga Elenora Ósk Georgsdóttir var valin Maður ársins á Suðurnesjum 2017 í upphafi árs.
Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2018“ má koma á tölvupóstfangið [email protected].