Hver er maður ársins 2014 á Suðurnesjum?
Eins og mörg undanfarin ár munu Víkurfréttir standa fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins nú um áramót. Óskað er eftir tilnefningum frá lesendum blaðsins.
Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2014“ má koma á tölvupóstfangið [email protected].
Víkurfréttir kusu Klemenz Sæmundsson sem mann ársins 2013. Hver tekur við kyndlinum af honum?