Hver er maður ársins 2013 á Suðurnesjum?
Eins og mörg undanfarin ár munu Víkurfréttir standa fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins nú um áramót. Óskað er eftir tilnefningum frá lesendum blaðsins.
Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2013“ má koma á tölvupóstfangið [email protected].
Fulltrúar Suðurnesjamanna í hljómsveitinni Of Monsters and Men, þau Brynjar og Nanna Bryndís, voru kjörin Suðurnesjamenn ársins 2012. Hver fær nafnbótina fyrir árið 2013?