Hver er maður ársins 2012 á Suðurnesjum?
Eins og mörg undanfarin ár munu Víkurfréttir standa fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins nú um áramót. Óskað er eftir tilnefningum frá lesendum blaðsins. Tilnefningar verða að berast í síðasta lagi á morgun, föstudaginn 28. desember.
Ábendingum um verðuga einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2012“ má koma á tölvupóstfangið [email protected].
Suðurnesjamaður ársins 2012 verður svo kynntur í Víkurfréttum sem koma út fimmtudaginn 10. janúar nk.