Hver er maður ársins 2009 á Suðurnesjum?
Víkurfréttir standa í ár fyrir valinu á Suðurnesjamanni/-konu ársins árið 2009. Víst er að fjölmargir hafa unnið gott og óeigingjarnt starf á sínu sviði í ár og margir eru til kallaðir þannig að Víkurfréttir vilja hvetja lesendur sína til að senda inn tilnefningar eða uppástungur um þá/þann sem þykja vel að nafnbótinni komnir.
Sendið tilnefningu ásamt rökstuðningi á póstfangið [email protected] og takið þátt í vali Víkurfrétta á manni ársins.
Mynd: Sigurður Wíum Árnason var kjörinn maður ársins á Suðurnesjum 2008.