Hver er maður ársins 2008 á Suðurnesjum?
Víkurfréttir standa í ár fyrir valinu á Suðurnesjamanni/-konu ársins árið 2008. Víst er að fjölmargir hafa unnið gott og óeigingjarnt starf á sínu sviði í ár og margir eru til kallaðir þannig að Víkurfréttir vilja hvetja lesendur sína til að senda inn tilnefningar eða uppástungur um þá/þann sem þykja vel að nafnbótinni komnir.
Sendið tilnefningu ásamt rökstuðningi á póstfangið [email protected] og takið þátt í vali Víkurfrétta á manni ársins.