HSS
HSS

Fréttir

Hvatagreiðslur upp á 46 milljónir til 1.656 barna
Fimmtudagur 28. febrúar 2019 kl. 16:07

Hvatagreiðslur upp á 46 milljónir til 1.656 barna

Alls greiddi Reykjanesbær 46 milljónir króna í hvatagreiðslur til foreldra 1.656 barna á aldrinum 6 til 18 ára á síðasta ári. Þetta kemur fram í gögnum íþrótta- og tómstundaráðs bæjarins. 
 
„Íþrótta- og tómstundaráð er afar ánægt með að foreldrar nýti sér greiðslurnar og stefnir að því að þær verði hækkaðar úr 28.000 kr. í 50.000 kr. á kjörtímabilinu,“ segir í fundargerð.
 
Bílakjarninn
Bílakjarninn