Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hvatagreiðslur hækka í 40 þúsund krónur
Fimmtudagur 31. desember 2020 kl. 07:05

Hvatagreiðslur hækka í 40 þúsund krónur

Reykjanesbær hefur ákveðið að taka upp annað kerfi við útgreiðslu á hvatagreiðslum sveitarfélagsins. Þær verða hækkaðar í 40.000 kr. á nýju ári. Hvatagreiðslum verður úthlutað „rafrænt“ í gegnum skráningarkerfið Nóra.

Í stuttu máli þá er helsta breytingin sú að greiðslan verður greidd mánaðarlega út til íþrótta- og tómstundafélaga í stað þess að greiðslan fari til foreldra líkt og núverandi kerfi segir til um. Þegar foreldri skráir barn til þátttöku í íþrótt eða tómstund þá þarf að tengjast Nóra-kerfinu. Ef æfingagjald er t.d. 80.000 kr. fær foreldrið möguleika á að velja að nýta hvatagreiðslur og getur ráðstafað sjálft greiðslunni – ef foreldrið ákveður að nýta allan styrkinn þá lækkar í þessu dæmi talan sem eftirstöðvar eru um 40.000 kr. Þá fær foreldrið möguleika á að greiða eftirstöðvar með eingreiðslu eða setja í greiðsludreifingu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024