Hvassvirði í kortunum
Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir norðaustan 10-15 m/s og skýjað með köflum eða bjartviðri, en hvassari á annesjum. Hiti 1 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan og norðaustan 5-10 m/s og dálítil slydda eða rigning norðan- og austanlands, en annars bjartviðri. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast sunnantil.
Á föstudag:
Norðaustanátt, víða 3-8 m/s, en heldur hvassara norðvestantil. Dálítil rigning, en skýjað og þurrt að mestu vestan og suðvestanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast suðvestantil.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Austlæg átt og dálítil væta um allt land. Heldur hlýnandi veður.
Af www.vedur.is