Hvassviðri og úrkoma fram á kvöld

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s og slydda eða rigning með morgninum, en suðvestlægari og skúrir síðdegis. Hægari vindur í kvöld og nótt, en suðvestan 8-15 á morgun. Hlýnandi og hiti 2 til 8 stig síðdegis og á morgun.
Yfirlit
Við Lófóten er víðáttumikil 975 mb lægð, sem hreyfist A. Við Hvarf er 982 mb lægð, sem þokast NA.
Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 10-18 og slydda eða rigning með morgninum, en þurrt norðaustantil fram yfir hádegi. Suðvestlægari og skúrir síðdegis og á morgun, en léttir til norðan- og austanlands í kvöld og hægari vindur um tíma í nótt. Hlýnandi og hiti víða 4 til 8 stig síðdegis í dag og allt að 12 stiga hiti á Norðausturlandi á morgun.
VF-mynd/elg