Hvassviðri og skýjað með köflum í dag
Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir suðaustan 8-15, hvassast vestantil. Hægari síðdegis. Skýjað með köflum. Hæg suðaustan átt á morgun og léttskýjað að mestu. Hiti 3 til 9 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður, en smáskúrir á stöku stað sunnantil á landinu. Hætt við þokulofti við sjávarsíðuna. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast á Suðvesturlandi, en víða næturfrost inn til landsins.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austan átt, rigning með suðurströndinni annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Af www.vedur.is