Bygg
Bygg

Fréttir

Hvassviðri og rigning með deginum
Mánudagur 10. desember 2007 kl. 09:29

Hvassviðri og rigning með deginum

Veðurspá fyrir Faxaflóa
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 18-23 m/s og slydda, en síðar rigning síðdegis. Hvassara og talsverð rigning um tíma kringum miðnætti. Lægir í nótt og sunnan 8-13 og skúrir á morgun. Hlýnandi veður og hiti 1 til 7 stig með kvöldinu.
Spá gerð: 10.12.2007 06:38. Gildir til: 11.12.2007 18:00.


Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él sunnan- og vestanlands, annars þurrt. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi, 18-23 m/s og rigning eða slydda með kvöldinu, fyrst suðvestan til. Hlýnandi veður.

Á fimmtudag:
Minnkandi suðlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið um landið norðanvert. Hiti 0 til 5 stig.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Suðlægar áttir og vætusamt, einkum suðaustanlands og fremur hlýtt.
Spá gerð: 10.12.2007 07:58. Gildir til: 17.12.2007 12:00.

Af www.vedur.is

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn