Hvassviðri og rigning í kvöld

Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 13-18 m/s síðdegis en 18-23 og rigning eða slydda í kvöld. Hlýnandi veður. Sunnan 8-13 á morgun, skúrir eða slydduél og hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu ásamt viðvörun !
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Viðvörun: Búist er við stormi víða um land í kvöld og nótt. Veðurspá: Hægviðri og víða léttskýjað. Vaxandi suðaustanátt þegar líður á daginn og þykknar upp, fyrst SV- og V-lands. Suðaustan stormur og rigning eða slydda í kvöld, en lægir talsvert í nótt. Sunnan og suðvestan 8-13 og skúrir eða slydduél á morgun, en léttir til á N- og A-landi. Hlýnar í veðri, hiti víða 0 til 5 stig í kvöld og á morgun.