Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hvassviðri og kólnar á morgun
Þriðjudagur 20. mars 2007 kl. 09:07

Hvassviðri og kólnar á morgun

Klukkan 6 var voru suðaustan 8-13 m/s og skýjað á vestanverðu landinu og sums staðar dálítil snjókoma, en hægara og úrkomulaust austan til. Hlýjast var eins stigs hiti syðst á landinu, en kaldast 14 stiga frost á Brú á Jökuldal.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Vaxandi sunnanátt, 13-18 m/s og slydda, síðar rigning með morgninum og talsverð úrkoma síðdegis. Snýst í vestan 10-18 með skúrum í kvöld, en él á morgun. Hiti 3 til 7 stig í dag, en kólnar á morgun. 

---------- Veðrið 20.03.2007 kl.06 ----------
   Reykjavík      Úrkoma í grennd           
   Stykkishólmur  Alskýjað                  
   Bolungarvík    Alskýjað                  
   Akureyri       Skýjað                    
   Egilsst.flugv. Léttskýjað                
   Kirkjubæjarkl. Skýjað                    
   Stórhöfði      Snjókoma                  
------------------------------------------------

Yfirlit
Um 500 km NA af Hvarfi er vaxandi 998 mb lægð á norðausturleið, en yfir A-landi er minnkandi 1028 mb hæðarhryggur sem fer A.

Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Vaxandi suðlæg átt, 13-18 m/s og slydda, en síðar rigningu suðvestanlands með morgninum og snjókoma norðaustan til um kvöldið. Snýst í suðvestan 10-18 með skúrum vestan til í kvöld, en léttir síðan til austanlands. Suðvestan 13-18 og él eða skúrir vestanlands á morgun, en annars 8-13 og bjart með köflum. Hlýnar og hiti 1 til 8 stig síðdegis, hlýjast syðst. Kólnar á morgun.
 
VF-mynd/Ellert Grétarsson: Himinn og ólgandi haf við Stafnesvita í fyrradag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024