Hvassviðri í dag og él
Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, en 8-15 seinni partinn, hvassast úti við sjóinn. Hiti kringum frostmark. Snýst í norðan 8-13 á morgun og kólnar.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 10-18 m/s og él, en hægari síðdegis. Snýst í norðan 8-13 á morgun. Hægt kólnandi veður og frost 0 til 5 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 8-13 m/s og él, en gengur í norðan 8-13 og með snjókomu N-lands síðdegis. Frost 1 til 10 stig, minnst syðst.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðvestan 10-15 m/s við NA-ströndina, en annars hægari norðlæg átt. Él á N- og A-landi, en annars bjartviðri. Talsvert frost.
Á föstudag:
Norðanátt og él N- og A-lands, en annars bjart. Áfram kalt í veðri.
Á laugardag:
Hægviðri og stöku él, en kalt í veðri.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með snjókomu.