Hvasst um hádegi en lægir síðdegis

Yfirlit:
Um 300 km ASA af Hvarfi er 965 mb lægð sem fer hægt norðaustur. Milli Jan Mayen og Noregs er minnkandi 990 mb lægð sem hreyfist NNA.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Viðvörun: Búist er við stormi við suðvesturströndina undir hádegi.
Gengur í suðaustan og austan 15-23 með rigningu sunnanlands kringum hádegi, en heldur hægari og slydda eða snjókoma norðantil undir kvöld. Lægir mikið sunnanlands og skúrir í kvöld. Suðvestan 5-13 og skúrir sunnanlands í fyrrmálið. Fremur hæg suðlæg átt og slydduél norðantil síðdegis á morgun Hlýnandi veður, hiti yfirleitt 1 til 7 stig í kvöld svalast í innsveitum NA lands.
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Gengur í suðaustan 13-20 m/s og hlýnar með rigningu undir hádegi. Mun hægari austanátt og skúrir í kvöld. Suðvestan 5-10 og skúrir í fyrramálið. Hiti 1 til 6 stig.