Hvasst og rigning
Suðaustan 10-18 m/s og rigning við Faxaflóa. Mun hægari og skúrir síðdegis. Hiti 7 til 12 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 8-15 m/s og rigning, hægari og skúrir seinni partinn. Hiti 7 til 10 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Fremur hæg breytileg átt og víða skúrir. Hiti 6 til 13 stig.
Á sunnudag (sjómannadagurinn):
Hæg breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum, en vaxandi suðaustanátt SV-til um kvöldið. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast S- og V-lands.
Á mánudag og þriðjudag:
Ákveðin sunnan- og suðaustanátt. Vætusamt á S- og V-verðu landinu, en lengst af þurrt NA-til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á N- og NA-landi.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir svipað veður áfram, en kólnar heldur.