Hvasst í dag en bjartviðri með köflum

Um 900 km suður af landinu er víðáttumikið 985 mb lægðasvæði sem hreyfist lítið. Yfir Grænlandi er 1029 mb hæð.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðaustanátt víða 8-15 m/s, en hvassari við suðausturströndina í dag. Rigning austanlands og slydduél eða skúrir á Norðurlandi og Vestfjörðum. Hægari norðantil í kvöld og nótt. Norðlæg átt 5-13, hvassast suðaustanlands á morgun og dálitlar skúrir eftir hádegi norðaustantil. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast suðaustantil, en heldur hlýrra á morgun.