Hvass vindur og éljagangur í dag
Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur við Faxaflóa í dag. Suðvestan 8-13 seint á morgun. Hiti 0 til 5 stig í dag, en kringum frostmark á morgun.?
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestanátt með hvössum éljum. Hiti 0 til 3 stig. Heldur kólnandi á morgun og hægari vindur síðdegis.?
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:?Snýst í norðan 8-13 m/s, fyrst NV-lands. Él fyrir norðan og einnig SV-lands framan af degi, annars úrkomulítið. Frost 1 til 10 stig, mildast syðst. ??
Á miðvikudag og fimmtudag:?Norðvestan 10-15 m/s við NA-ströndina, annars hægari norðlæg átt. Víða bjartviðri, en él á N- og NA-landi. Talsvert frost. ??
Á föstudag og laugardag:?Norðlæg eða breytileg átt. Él á víð og dreif og kalt í veðri.