Hvalsneskirkju færð gjöf
Axel Svan Kortsson og Laufey Svala Kortsdóttir sem búa að Víkurbraut 17 í Sandgerði færðu Hvalsneskirkju tvöhundruð þúsund krónur til minningar um foreldra sína Kort Elísson f.08.08.1883 og Guðnýju Gísladóttur f.14.10.1884 en þau bjuggu að Melabergi á Miðnesi, gjöfin er gefin til lagfæringar á þaki kirkjunar.Sóknarnefnd færir þeim systkinnum kærar þakkir fyrir gjöfina. Nú er ný lokið við að setja kopar á þak kirkjunar ásamt því að turn var lagfærður og málaður, enfremur voru gluggar og hurðir málað, segir í frétt frá Hvalsneskirkju.