Hvalkássa sunnan við Stafnes
Hvalhræ sem rak á land í Skarfurð, um tvo kílómetra sunnan við Stafnes, er ennþá í fjörunni þar sem það rotnar hægt og rólega. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar skoðaði hvalhræið í eftirlitsflugi í dag.
Hvalinn rak á land í apríl en greint var frá rekanum hér á vf.is undir lok apríl sl. Af myndunum, sem ljósmyndari Víkurfrétta tók í dag í eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar, má sjá að þeir sem sjá um umhverfismál af þessu tagi í Sandgerði ætla sér að láta náttúruna um að brjóta niður hræið. Það mun örugglega taka tíma en af ummerkjum að dæma, þá sækir fugl mikið í hvalkássuna í fjörunni.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Hræið af hvalnum er hér fyrir miðri mynd.