Hvalir léku listir í allt kvöld
Hrefnur léku listir sínar á Keflavíkinni í allt kvöld og hnúfubakur var uppi í landsteinum við Vatnsnesið. Fjölmargir lögðu leið sína niður á fjörukambinn við Ægisgötuna og fylgdust með hvölunum þar sem þeir virtust vera í miklu æti. Var mikið um stökk og að sögn sjónarvottar var ótrúlegt að fylgjast með þessum stóru dýrum að veiðum örfáa metra frá landi.
Hvalirnir hafa verið uppi í harðalandi síðustu tvo sólarhringa og sýna ekkert fararsnið. Þannig voru þeir inni í höfninni í Keflavík í gærmorgun og sagði Helga Ingimundardóttir hjá Moby Dick hvalaskoðunarskipinu að skipsstjórinn hafi í raun mátt passa sig að sigla ekki á hvalina þegar hann fór úr höfn.
Mynd: Hnúfubakurinn á Keflavíkinni í gærmorgun. Hann var á sömu slóðum í kvöld og virtist ekkert fararsnið á honum. VF-ljósmynd: Margrét Engilberts