Mánudagur 17. september 2001 kl. 11:14
Hvalhræ í fjörunni

Illa lyktandi hvalhræ rak á fjöruna neðan við gömlu sundmiðstöðina í Keflavík sl. laugardag. Sjófuglarnir glöddust yfir þessum góða feng og hafa verið að gæða sér á honum alla helgina. Að sögn hafnarstjóra verður hræið dregið á haf út mjög fljótlega.