Hval rak á land við Grindavík
Hvalur fannst rekinn á land í fjörunni við golfvöllinn í Grindavík í gærmorgun. Hafði orðið vart við hann skömmu áður þar sem hann var að veltast um í ölduróti í Arfadalsvík. Hann rak svo á land og lá dauður í fjöruborðinu skammt undan landi þegar að var komið. Lögreglan á Suðurnesjum sendi tilkynningu varðandi málið á þar til bærar stofnanir.