Hvaða umgengni er þetta?
Það hefur greinilega mikið gengið á við höfnina í Sandgerði þar sem mátti sjá þessa pallbifreið á hvolfi á grjótgarðinum við smábátahöfnina í gærdag. Þetta er umgengni sem er ólíðandi. Eflaust hafa skemmdarvargar verið hér á ferð og fengið útrás á bílnum sem í eina tíð hefur örugglega þjónað einhverjum trillukarlinum vel. Það kemur síðan í hlut hafnarstarfsmanna að koma hræinu til eyðingar. Hugsanlega vita hafnarstarfsmenn hver stóð fyrir verknaðinum, því Sandgerðishafnar er vel gætt með eftirlitsmyndavélum.