Bygg
Bygg

Fréttir

Hvaða fugla má finna á Reykjanesi og hvar?
Mánudagur 26. mars 2012 kl. 11:06

Hvaða fugla má finna á Reykjanesi og hvar?

Vissir þú að á Fitjatjörn í Njarðvík heldur til ljóshöfði – sjaldgæf andartegund? Að í Sandgerði má sjá reglulega fjöruspóa? Að í Þórkötlubót í Grindavík hafa sést æðarkóngar? Að í Höfnum sást sefgoði? Að Garðskagafjara er ein þekktasta fuglafjara á landinu? Sem og Vogatjörn? Og er þá fátt eitt talið.

Félagið Fuglar á Reykjanesi býður til galopins fundar um fuglaparadísina Reykjanes. Fundurinn er ætlaður almenningi. Bjarni Sæmundsson, verslunarstjóri og mikill fuglaáhugamaður, ætlar að sýna í máli og myndum helstu fugla sem finna má á Reykjanesi. Tegundirnar skipta mörgum tugum og sjaldséðir flækingar verða stöðugt algengari. Bjarni mun veita ráð um helstu aðferðir við fuglaskoðun, hvar helstu staðir eru á Reykjanesi og annað sem lýtur að þessi ört vaxandi áhugamáli. Núna þegar farfuglarnir streyma til landsins er gráupplagt að koma í Keili á fimmtudag kl. 20 til að heyra Bjarna Sæmundsson miðla af reynslu sinni í fuglaskoðun á Reykjanesi. Allir velkomnir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn