Hvað er svona merkilegt við mig?
-hádegiserindi um mikilvægi almannatengsla í markaðsstarfi
Hvað er svona merkilegt við mig er heiti á fyrirlestri HN markaðssamskipta í frumkvöðlasetrinu Eldey sem fjallar um mikilvægi almannatengsla í markaðsstarfi.
Fyrirlesarar eru þeir Sváfnir Sigurðarson og Kristján Hjálmarsson, almanna- og viðskiptatenglar á H:N Markaðssamskiptum. Sváfnir hefur áralanga þekkingu af markaðs- og almannatengslum. Hann hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Borgarleikhússins. Kristján starfaði á Fréttablaðinu og Vísi.is í um 14 ára skeið, þar af sem fréttastjóri í sjö ár.
H:N Markaðssamskipti hlutu Lúðurinn, íslensku markaðsverðlaunin, á síðasta ári fyrir árangursríkustu herferðina. Herferðin var unnin fyrir SÍBS og byggði að miklu leyti á almannatengslum.
Hádegiserindið verður haldið þriðjudaginn 10. nóvember kl. 12 - 13, Grænásbraut 506. Allir velkomnir og boðið er upp á fríar heilsuveitingar frá Höllu.
Þátttakendur þurfa að skrá þátttöku fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. nóvember.